Fara í efni
13.03.2026 Fréttir, Viðburðir

Fyrstur kemur, fyrstur fær! Opnað fyrir umsóknir í orlofshús og Orlof að eigin vali

Deildu

Í dag, þann 13. mars 2026 kl. 12:00 mun opnast fyrir umsóknir um orlofshús yfir sumartímabilið frá 29. maí - 21. ágúst, sem ekki gengu út í úthlutunarferlinu. Vikur sem eru lausar yfir sumartímabilið má sjá inná Mínar síður - á heimasíðu félagsins. Gildir þar um að fyrstur kemur, fyrstur fær.

Einnig er opnað aftur fyrir umsóknir um Orlof að eigin vali til 21. ágúst 2026. Fjöldi styrksloforða verða 120 talsins. Styrkupphæð er 35.000 kr.

Athugið að ekki er hægt að sækja um bæði orlofshús og Orlofi að eigin vali á sama sumarúthlutunartímabilinu, einungis annað hvort.

Í Orlof að eigin vali skal orlofskostur vera nýttur á tímabilinu 1. maí - 30. september, skila þarf inn kvittun með nafni og kennitölu félaga SfK, orlofskosti þeim sem nýttur var. Kvittanir þurfa að hafa borist í tölvupósti fyrir þann 30. nóvember.

Sótt er um á Mínum síðum félagsins: