Í gær var haldinn fyrsti trúnaðarmannafundur ársins 2026.
Í upphafi var farið yfir fundarboð á aðalfund félagsins sem haldinn verður 19. mars n.k. og framboð í stjórn og nefndir. Trúnaðarmenn voru eindregið hvattir til að bjóða sig fram ef áhugi væri fyrir hendi og kynna framboðin fyrir sínu samstarfsfólki sem er í SfK.
Fræðsla dagsins var skipulögð út frá þarfagreiningu sem gerð var í lok síðasta árs á meðal trúnaðarmanna. Þar kom meðal annars í ljós að trúnaðarmenn vildu styrkja enn frekar þekkingu sína og hæfni í að lesa starfsmat, launaflokka, reikna út persónuálag og laun.
Á trúnaðarmannafundinum í gær var hópnum skipt í fjóra hópa og lagt fyrir ákveðin verkefni til að leysa. Hver hópur fékk á sitt borð starfslýsingu þar sem óskað var eftir starfsmanni í ákveðna stöðu í bæjarfélaginu, umsókn aðila sem ráða átti í starfið þar sem tilgreind var ákveðin hæfni, starfsreynsla og aðrir eiginleikar sem gætu komið sér vel í starfi og launatöflur. Hver hópur átti því að finna út í hvaða launaflokk viðkomandi raðaðist, reikna út hvað metið væri til persónuálags út frá menntun og starfsreynslu og reikna þannig út heildarlaun við komandi. Verkefnið reyndi því á hæfni í að lesa úr kjarasamning, greina á milli hvað metið er til menntunar og starfsreynslu í bæjarfélaginu og finna sérákvæði sem gætu átt við. Hópstjóri hvers hóps kom svo upp og lýsti sínu verkefni og reifaði umræðu og niðurstöðu hópsins.
Í lok fundarins var svo farið yfir tvö önnur dæmi um ráðningu í starf sem trúnaðarmannahópurinn tókst á við í sameiningu og reyndi þar á flóknari þætti í kjarasamning.
Trúnaðarmenn sökktu sér í þessi verkefni með glæsibrag og leystu þau vel af hendi. Heilmiklar umræður sköpuðust í kjölfarið um hin ýmsu málefni þessu tengt, bæði út frá kjarasamningum og starfsmati en einnig út frá einstaka vinnustöðum og störfum.
Starfsmannafélag Kópavogs þakkar öllum fyrir þátttökuna og ríkulegar umræður. Það er ljóst að hópur trúnaðarmanna SfK hefur mikinn metnað og áhuga á baráttumálum og velferð félagsfólks.






