Fara í efni
28.05.2026 Fréttir

Fræðslukvöld um ADHD

Deildu

Starfsmannafélag Kópavogs bauð upp á fræðsluerindi um ADHD, taugafjölbreytileika og kvíða í gærkvöldi á Bókasafni Kópavogs.

Jóna Kristín Gunnarsdóttir verkefnastjóri fræðslumála ADHD samtakanna hélt erindið en mikilvægt er að skapa meira rými fyrir fræðslu og opna umræðu um geðheilsu, taugafjölbreytileika og þær áskoranir sem margir upplifa í daglegu lífi og starfi. ADHD og önnur form taugafjölbreytileika snerta sífellt fleiri, bæði beint og óbeint, og aukinn skilningur getur skipt sköpum fyrir líðan fólks, samskipti og starfsumhverfi. Fræðsla eykur alltaf skilning.

 

ADHD samtökin sinna afar mikilvægu hlutverki með því að bjóða reglulega upp á fræðslu, námskeið og ráðgjöf fyrir fólk með ADHD, aðstandendur og aðra sem vilja kynna sér málefnið betur. Ekki þarf að vera með greiningu til að leita til samtakanna eða sækja viðburði þeirra og hvetjum við félagsfólk eindregið til að kynna sér það góða starf sem þar fer fram.