Fara í efni
26.03.2026 Fréttir

Fjármálaráðherra sagt upp störfum

Deildu

Óvenjuleg auglýsing í Morgunblaðinu í dag hefur vakið athygli fyrir beitta og hnitmiðaða ádeilu á fyrirhugaðar breytingar á réttindum ríkisstarfsmanna. Í blaðinu er uppsagnarbréf þar sem fjármálaráðherra er sjálfur látinn sæta þeim reglum sem ríkisstjórnin hyggst innleiða.

Í auglýsingunni er sett upp sviðsmynd þar sem ráðherranum er sagt upp störfum án nokkurs fyrirvara. Þar er vísað til þess að samkvæmt nýju fyrirkomulagi sé ekki lengur skylda að veita áminningu eða gefa starfsmanni færi á að bæta ráð sitt áður en til uppsagnar kemur. Niðurstaðan er skýr: uppsögn tekur gildi samdægurs, án aðvörunar eða millistiga.

„Samkvæmt nýju fyrirkomulagi hefur áminningarskylda verið afnumin. Það þýðir að ekki er lengur gerð krafa um að veitt sé áminning eða gefið sé tækifæri til úrbóta áður en gripið er til uppsagnar.“

Auglýsingin er dagsett 26. mars 2026 og stíluð á ráðherrann sjálfan. Að henni standa BSRB, Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga og Kennarasamband Íslands, sem vísa jafnframt á upplýsingasíðuna góðáminning.is þar sem má kynna sér málið nánar.

Ádeilan dregur upp mynd af vinnumarkaði þar sem mistök eru ekki lengur liðin og starfsfólk fær ekki annað tækifæri. Með einföldum en áhrifaríkum hætti er varpað ljósi á hvaða afleiðingar slíkar breytingar gætu haft í reynd – þar sem engin vernd er til staðar gegn skyndilegum og hugsanlega geðþóttaákvörðunum.

 Áminningarskylda er ekki formsatriði heldur mikilvæg vernd sem tryggir jafnræði, fagmennsku og traust á vinnumarkaði. 

Frétt á Vísi 26. mars 2026

Frumvarp til laga um afnám áminningarskyldu