Fara í efni
20.02.2026 Fréttir

BSRB svarar rangfærslum Viðskiptaráðs

Deildu

Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, hefur svarað umfjöllun Viðskiptaráð Íslands um veikindafjarveru opinberra starfsmanna og bendir á að þar sé dregin upp villandi mynd.

Í umræðunni eru meðal annars notaðar tölur frá árinu 2020, fyrsta ári Covid-19 faraldursins. Þá voru aðstæður óvenjulegar og margt framlínustarfsfólk í opinberri þjónustu í meiri smithættu en aðrir hópar. Það skýrir að hluta til aukna skráða fjarveru það ár.

Einnig bendir Sonja á að talning veikindadaga sé ólík á opinberum og almennum vinnumarkaði. Á opinberum markaði eru almanaksdagar taldir, en á almennum markaði einungis vinnudagar. Sá munur getur látið fjarveru líta út fyrir að vera meiri hjá hinu opinbera, þótt raunverulegur munur sé minni eða enginn.

Þá sé ekki rétt að gefa í skyn að veikindaréttur opinberra starfsmanna sé mun ríkari. Þótt greiðslur frá atvinnurekanda geti verið lengri hjá hinu opinbera, eiga starfsmenn á almennum markaði rétt á greiðslum úr sjúkrasjóðum stéttarfélaga. Heildarrétturinn geti því verið sambærilegur.

Að mati BSRB liggur kjarni málsins ekki í réttindum starfsfólks heldur í manneklu og álagi í lykilstörfum samfélagsins. Lausnin sé að bæta starfsaðstæður og mönnun – ekki að skerða réttindi þeirra sem halda uppi grunnþjónustu.

Að leggja til skerðingu veikindaréttar hjá hópum sem eru útsettari fyrir veikindum vegna starfsaðstæðna er ekki aðeins ósanngjarnt heldur ómanneskjulegt"

Hér má lesa grein Sonju í heild sinni: