BSRB hefur, ásamt Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga og Kennarasamband Íslands, skilað umsögn til Alþingis þar sem lagst er eindregið gegn frumvarpi fjármálaráðherra um afnám áminningarskyldu úr lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
Í umsögninni er bent á að afnám áminningarskyldu myndi veikja starfsöryggi verulega, þar sem hægt yrði að segja starfsfólki upp án viðvörunar eða tækifæris til úrbóta. Þá séu auknar líkur á óréttmætum uppsögnum og réttaróvissu.
Samtökin gagnrýna jafnframt skort á rökstuðningi og samráði, og benda á að stjórnendur hafi almennt ekki kallað eftir slíkum breytingum. Frekar sé þörf á auknum stuðningi og fræðslu til stjórnenda.
Þá er bent á að uppsagnarvernd sé almennt sterkari á Norðurlöndum og að óeðlilegt sé að miða við lakari réttindi. Samtökin leggja áherslu á að hægt sé að bæta lögin án þess að skerða grundvallarréttindi starfsfólks.
Að lokum er þess krafist að frumvarpið verði dregið til baka.
Hér má lesa umsögnina í heild sinni:
