Fara í efni
26.02.2026 Fréttir

BSRB og fleiri heildarsamtök gagnrýna harðlega frumvarp um afnám áminningarskyldu

Deildu

Í nýlegri frétt BSRB kemur fram að heildarsamtökin hafa ásamt „...BHM, Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga og Kennarasambandi Íslands, skilað umsögn um frumvarp stjórnvalda sem felur í sér afnám áminningarskyldu úr lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Í umsögninni er frumvarpið gagnrýnt harðlega og varað við því að með því sé vegið að áratugagömlum og sjálfsögðum réttindum starfsfólks ríkisins."

Í umsögninni er bent á að áminningarskyldan feli í sér skýrar leikreglur sem tryggi vandaða málsmeðferð þegar teknar eru ákvarðanir um uppsögn. Reglurnar hafi sannað gildi sitt og nýleg dómaframkvæmd bendi ekki til þess að ástæða sé til að fella þær brott. Þvert á móti sýni reynslan að stjórnendur hafi svigrúm og úrræði til að taka á starfsmannamálum — vandinn liggi fremur í beitingu reglna en reglunum sjálfum.

Þá er undirstrikað að eðlilegt og sanngjarnt sé að starfsmaður fái formlega viðvörun áður en til uppsagnar kemur, þegar ástæður má rekja til hans sjálfs. Áminningarskylda sé mikilvæg vernd sem stuðli að málefnalegum og faglegum vinnubrögðum og þar með að gæðum opinberrar þjónustu.

Að mati BSRB og annarra samtaka beinist frumvarpið að röngu forgangsverkefni, „...stærstu áskoranir ríkisins í mannauðsmálum séu meðal annars mannekla, atgervisflótti, mikil starfsmannavelta og veikindafjarvera." Ef markmiðið sé að bæta mannauðsstjórnun og styrkja opinbera þjónustu þurfi að beina sjónum að þeim þáttum — en ekki veikja réttarstöðu starfsfólks.

Hér má sjá frétt BSRB og umsögn bandalagsins í heild sinni: