BSRB hefur skilað inn umsögn um nýtt frumvarp félags- og húsnæðismálaráðherra sem felur í sér umtalsverðar breytingar á lögum um atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir. Bandalagið lýsir yfir miklum áhyggjum af frumvarpinu og leggst alfarið gegn því.
Tvær breytingar vega þar þyngst í gagnrýni BSRB. Annars vegar er lagt til að hámarkstími atvinnuleysisbóta verði styttur um 40%, úr 30 mánuðum niður í 18 mánuði. Hins vegar er lagt til að réttur til bóta myndist ekki fyrr en eftir að einstaklingur hefur starfað á innlendum vinnumarkaði í að minnsta kosti 12 mánuði, í stað þriggja mánaða eins og nú gildir. Að mati BSRB eru þessar tillögur bæði órökstuddar og skaðlegar, sérstaklega þar sem þær voru unnar án samráðs við aðila vinnumarkaðarins.
Þá gagnrýnir BSRB harðlega að frumvarpið hafi verið lagt fram án samráðs við aðila vinnumarkaðarins og þrátt fyrir tveggja ára vinnu starfshóps þar sem fulltrúar þeirra áttu sæti.
Hér fyrir neðan er hlekkur á frétt BSRB um málið og umsögn BSRB í heild sinni.
