Fara í efni
04.02.2026 Fréttir

Athugið - Katla félagsmannasjóður!

Deildu

Þessa dagana er verið að greiða úr félagsmannasjóðnum Kötlu og því er mikilvægt að allt félagsfólk í SfK fari inn á https://katla.bsrb.is/ og skrá bankaupplýsingar sínar, svo að hægt sé að koma út greiðslum til félagsfólks okkar.

Á heimasíðu félagsins komu áður fram þær upplýsingar að til þess að fá úthlutun úr Kötlusjóði þyrfti að skrá bankaupplýsingar á Mínar síður félagsins. En bankaupplýsingar þurfa einnig að vera inni á heimasíðu Kötlusjóðs.

Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum og töfum sem þetta hefur valdið. 

Allir eiga rétt á sinni greiðslu úr sjóðnum! Þeir sem eiga eftir að skila inn upplýsingum geta gert það áfram, en þurfa að ljúka umsókn og verða þá greiddir út við næstu útborgun úr Kötlusjóð.

Það er launagreiðandi sem greiðir í sjóðinn, 2,2% af launum fyrir árið 2025, því geta greiðslur verið mismunandi milli félagsfólks.

Endilega hafið samband við félagið ef að við getum aðstoðað eða ef vakna upp spurningar.