Formannaráð BSRB krefst þess að fjármálaráðherra, Daði Már Kristófersson, dragi til baka frumvarp um afnám áminningarskyldu ríkisstarfsmanna og beini sjónum að raunverulegum úrlausnum, svo sem bættum starfsaðstæðum og aðgerðum til að laða að og halda í starfsfólk.
Afnám áminningarskyldu myndi fela í sér verulega skerðingu á réttindum starfsfólks og draga úr starfsöryggi. Slíkar breytingar gætu einnig haft víðtæk áhrif ef sveitarfélög fylgja í kjölfarið.
Áminningarskylda kemur ekki í veg fyrir uppsagnir, heldur tryggir að þær byggi á málefnalegum forsendum. Hún er grundvallarvernd gegn geðþótta og misbeitingu valds og er í samræmi við það sem tíðkast á vinnumarkaði í þeim löndum sem við berum okkur saman við.
Formannaráð BSRB mótmælir frumvarpinu harðlega og leggur áherslu á að réttindi starfsfólks skuli efld – ekki skert.
Hér má lesa ályktun BSRB:
Ályktun formannaráðs BSRB
