Starfsmannafélag Kópavogs býður upp á fræðsluerindi um ADHD, taugafjölbreytileika og kvíða þann 27. maí n.k. kl. 19:00-20:30 á aðalhæð Bókasafns Kópavogs.
Í nýlegri könnun sem Starfsmannafélag Kópavogs lagði fyrir félagsfólk kom skýrt fram að mikill áhugi er á fræðslu sem tengist geðheilsu, taugafjölbreytileika og leiðum til að takast á við álag í daglegu lífi og starfi. Erindið um ADHD, taugafjölbreytileika og kvíða er því haldið til að bregðast við þeirri eftirspurn og skapa vettvang fyrir aukinn skilning, fræðslu og opna umræðu um málefni sem snerta sífellt fleiri – bæði á vinnustöðum sem og í samfélaginu almennt.
Jóna Kristín Gunnarsdóttir, verkefnastjóri fræðslumála ADHD samtakanna, verður með erindið.
Fyrirlesturinn er fyrir virka félaga SfK en ykkur er velkomið að taka með fjölskyldu, vini eða samstarfsfólk ykkar. Séu þið í félaginu er hægt að skrá sig á hnappnum hér fyrir neðan, hafið þið hug á að taka einhverja með ykkur biðjum við um að fá nöfnin ykkar send í tölvupósti sfk@stkop.is upp á að tryggja sætapláss.
