Aðalfundur Starfsmannafélags Kópavogs (SfK), haldinn í Kópavogi 19. mars 2026, samþykkti einróma ályktun þar sem áformum stjórnvalda er harðlega er mótmælt um að leggja niður áminningarskyldu ríkisstarfsmanna í lögum nr. 70/1996.
Í ályktuninni, sem var borin upp og samþykkt með einróma samstöðu fundarmanna, kemur fram að fyrirliggjandi áform séu óvönduð, illa rökstudd og ómálefnaleg. Að mati SfK tryggja núgildandi reglur faglega málsmeðferð, réttláta stjórnsýslu og sanngjarna meðferð starfsmanna. Engin rök hafi verið færð fram sem sýni að breytingin myndi leiða til betri stjórnsýslu—þvert á móti væri verið að ganga á grundvallarréttindi fólks í opinberri þjónustu.
Aðalfundur SfK hvetur stjórnvöld eindregið til að falla frá áformunum eða endurskoða þau í samstarfi og raunverulegu samráði við stéttarfélög og heildarsamtök launafólks, líkt og lög og venja krefjast.
Í ályktuninni er áréttað að áminningarskyldan sé ekki íþyngjandi heldur mikilvægur öryggisventill sem tryggir gagnsæi, málefnalega málsmeðferð og vernd gegn ómálefnalegum uppsögnum. Einnig er bent á að nýleg dómaframkvæmd sýni að stjórnendur hafi þegar nægt svigrúm til að grípa til áminninga eða uppsagna þegar rétt er að málum staðið.
SfK bendir á að vandinn í opinberri þjónustu liggi ekki í réttindum starfsmanna heldur í manneklu, háu álagi, veikindafjarvistum og erfiðleikum við að halda starfsfólki. Að skerða réttindi sé ekki lausnin, heldur þurfi að efla fræðslu og stuðning við stjórnendur.
Samþykkt ályktun aðalfundar endurspeglar skýra og einróma afstöðu félagsins og félagsfólks þess: að standa vörð um grundvallarréttindi opinberra starfsmanna og vandaða, trausta stjórnsýslu.
Ályktunina í heild sinni má lesa hér:
