Aðalfundur Starfsmannafélags Kópavogs var haldinn í gær, þann 19. mars 2026 í safnaðarheimili Kópavogskirkju, Borgir.
Á fundinum fór fram hefðbundin aðalfundarstörf, en fundarstjóri var Magnús Már Guðmundsson fyrrum framkvæmdarstjóri BSRB.
Marta Ólöf Jónsdóttir formaður flutti skýrslu stjórnar og fór yfir verkefni félagsins. En félagið hefur að undaförnu verið að byggja upp innra starfs félagsins, t.d. með nýrri heimasíðu félagsins og öflugri trúnaðarmannafræðslu. Þá hefur félagið einnig verið að bjóða félagsfólki upp á námskeið, sem hefur mælst einstaklega vel fyrir.
Sigurður Þ. Kjartansson formaður orlofsnefndarinnar, fór yfir viðhald á orlofshúsum félagsins ásamt niðurstöðu úr könnun félagsmanna sem lögð var fram dagana 5. - 26. janúar 2026 varðand kaupa á nýju orlofshúsi félagsins.
Málfríður Anna Gunnlaugsdóttir, gjaldkeri SfK, fór yfir reikninga félagsins og í kjölfarið fór fram umrða um þá og starfsemi félagsins. Reikningar voru svo samþykktir með 100 prósentum atkvæða.
Marta Ólof Jónsdóttir var endurkjörin formaður félagsins. Þá kvöddum við fráfarandi stjórnarmann Jóhannes Ævar Hilmarsson og þökkuðum honum innilega fyrir sitt góða starf fyrir félagið síðustu 8 ár og ómetanlegt framlag. Við óskum Elísabetu Stefánsdóttur til hamingju með endurkjör sitt og við bjóðum nýjan stjórnarmeðlim innilega velkominn, en Sigmundur Karl Kristjánsson var kosinn nýr inn.
Nokkrar breytingar urðu á orlofsnefnd en um hana er kosið á hverju ári. Þá kvöddum við einnig Kamillu E. Elísabetardóttur, Guðmund Kjartansson og Gylfa Sigurðsson. Við þökkum þeim innilega fyrir samstarfið á síðasta starfsári. Þá óskum við þeim Súsanna Elisabeth Heinesen, Matthías Rúnarsson, Hrannar Sveinsson og Diogo Xavier Miranda Alexandre með kjörið í orlofsnefnd.
Á aðalfundi SfK var ályktun félagsins um áform stjórnvalda um afnám áminningarskyldu borin upp og samþykkt í heild sinni án athugasemda. Niðurstaðan endurspeglar skýra og einróma afstöðu SfK og félagsfólks gegn áformunum. Sjá ályktunina í heild sinni hér:
Eftir að fundi var slitið nutum við matar og drykkja undir ómandi söng Katrínu Halldóru Sigurðardóttur söng- og leikkonu.
SfK þakkar öllum kærlega fyrir komuna!
Hér fyrir neðan má sjá nokkrar myndir af fundinum.















