Ný könnun frá Vörðu - Rannsóknarstofnun vinnumarkaðarins sýnir hversu erfiða stöðu ófaglært starfsfólk leikskóla er í. Niðurstöðurnar eru sláandi og sýna hversu verr hópurinn stendur samanborið við annað launafólk, bæði hvað varðar fjárhag og andlega heilsu.
Tæplega helmingur leikskólastarfsmanna eða 49% segist ekki geta mætt óvæntum 100 þúsund króna útgjöldum. Hlutfallið er aðeins lægra hjá starfsfólki grunnskóla eða 37% en um 30% hjá öðru launafólki.
Niðurstöðurnar benda einnig til þess að starfsfólk í leik- og grunnskólum sé oftar með yfirdrátt og/eða skammtímaskuldir en aðrir hópar. Hærra hlutfall leikskólastarfsmanna er á leigumarkaði eða býr hjá ættingjum og eiga síður eigið húsnæði. Það sé því verr sett fjárhagslega að mörgu leiti.
Andleg heilsa og líðan er verri en hjá öðrum hópum. 38% segjast búa við slæma andlega heilsu sem er töluvert hærri prósenta í samanburði við grunnskólastarfsfólk (23%) og annað launafólk (29%).
18% leikskólastarfsfólks hefur ekki efni á staðgóðri máltíð annan hvorn dag, 27% hefur ekki efni á að sinna nauðsynlegu viðhaldi heimilisins og 43% hafa ekki efni á að skipta út slitnum húsgögnum. Það eru ekki bara efnisleg fátækt sem er sláandi heldur sést skorturinn líka í félagslegum þáttum. 51% leikskólastarfsmannanna og 39% grunnskólastarfsmanna getur ekki eytt smávegis pening í sjálfan sig, 45% leikskólastarfsfólk og 40% grunnskólastarfsfólk hefur ekki tök á að hitta vini eða fjölskyldu mánaðarlega!
Foreldrar sem starfa í leik- og grunnskólum skortir í meira mæli grunnþætti fyrir börnin sín:
Fjórðungur hefur ekki efni á nauðsynlegum klæðnaði fyrir börn sín.
Tæplega þriðjungur hefur ekki efni á kostnaði vegna afmæla eða annarskonar fagnaða fyrir börn.
Tæplega þriðjungur getur ekki gefið börnum sínum eins næringarríkan mat og þeir vilja.
Það er því skýrt að þessi hópur sem hefur lágar atvinnutekjur, hátt hlutfall þeirra býr við slæma fjárhagsstöðu, lægra hlutfall þessa hóps býr í eigin húsnæði og hátt hlutfall mælist við slæma andlega heilsu meðal leikskólastarfsfólks!
Þessi hópur sinnir hvað mikilvægasta hlutverki samfélagsins, sinnir yngstu börnunum allra foreldra í samfélaginu okkar. Þessi hópur býr við þrengstan kost í kerfisbundinni mismunum og er mun líklegri til að lenda í langtímaveikindum vegna álags og vinnuaðstæðna.




