Fara í efni
27.04.2026 Fréttir

1. maí 2026 - Verkalýðsdagurinn

Deildu

Á föstudaginn næstkomandi, þann 1. maí, fögnum við alþjóðlegum baráttudegi verkalýðsins. 

Dagurinn er haldinn hátíðlegur í mjög mörgum löndum um allan heim og á rætur sínar að rekja til verkalýðsbaráttu á 19. öld, sérstaklega tengdri Haymarket Affair í Chicago árið 1886, þar sem barist var fyrir 8 stunda vinnudegi. 

Verkalýðsdagurinn minnir okkur á að réttindi á vinnumarkaði eru ekki sjálfgefin. Þau hafa unnist í gegnum áratuga baráttu fyrir betri kjörum, styttri vinnudegi, auknu öryggi og réttlátri meðferð. Enn í dag stendur verkalýðshreyfingin frammi fyrir áskorunum þar sem mikilvægt er að standa vörð um áunnin réttindi og vinna áfram að bættum lífskjörum allra.

Samstaða er kjarninn í þessum degi. Með þátttöku sýnum við að rödd launafólks skiptir máli og að við stöndum saman um réttlátt og sanngjarnt samfélag.

Við hvetjum allt félagsfólk SfK til að taka þátt í hátíðarhöldum dagsins og leggja sitt af mörkum til öflugrar samstöðu.

 

Dagskráin í Reykjavík er sem hér segir:

13:00   Safnast saman á Skólavörðuholti.

13:30   Gangan hefst og fer niður Skólavörðustíg, Bankastræti og Austurstræti að Ingólfstorgi. Lúðrasveit verkalýðsins og Lúðrasveitin Svanur spila á Skólavörðuholti og síðan í göngunni niður á Ingólfstorg.

14:00   Útifundur hefst á Ingólfstorgi. Fundarstjóri er er Felix Bergsson, fjölmiðlamaður og leikari. Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, ávarpar fundinn og Inspector Spacetime tekur lagið. Í lok fundarins verður samsöngur.

Dagskráin verður táknmálstúlkuð

 

Hér fyrir neðan má sjá nánar um viðburði víðsvegar um landið: