Fara í efni
02.03.2026 Fréttir

Mannauðssjóðurinn Hekla

Deildu

Við minnum á Mannauðssjóðinn Heklu ef stofnanir sveitarfélagsins hyggjast halda námskeið eða huga að starfsþróun fyrir sitt starfsfólk. Einnig er hægt að sækja um fyrir náms- og kynnisferðir á vegum stofnunarinnar en þá þarf að passa að sækja um á fjórða ári frá síðustu ferð og senda öll gögn með umsókninni. 

Inni á heimasíðunni er umsóknargátt https://www.mannaudssjodur.is/umsokn og í gegnum hana er sótt um styrkina. Athugið að sótt er um á kennitölu sveitarfélagsins þar sem sjóðurinn er vinnustaðasjóður en ekki einstaklingssjóður.


Stofnunin sækir um fyrir hönd starfsmanna sinna - við ítrekum að þetta er vinnustaðasjóður en ekki einstaklingssjóður og mikilvægt að félagsfólk taki ekki kvittanir eða borgi inná ferðir á eigin kennitölu.