Árið 2025 var viðburðaríkt og mótaðist af eftirfylgni kjarasamninga, öflugu málefnastarfi og sameiginlegu átaki á Kvennaárinu þar sem kastljósið var beint að jafnrétti, kjörum kvenna og kynbundnu misrétti.
Jafnframt var lögð rík áhersla á stöðu fjölskyldna og barna, meðal annars með vinnu að lausnum á umönnunarbili milli fæðingarorlofs og leikskóla. Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, fer yfir þessa vegferð í áramótapistli sínum — og beinir einnig sjónum fram á nýtt ár, að 2026 verði helgað bættum hag barna og markvissum aðgerðum gegn fátækt þeirra.
