Heim

Opnunartímar

Mánudaga frá kl. 09.00 - 13.00 og 15.00 - 17.00  
Þriðjudaga frá kl. 09.00 - 13.00  
Miðvikudaga frá kl. 09.00 - 13.00  
Fimmtudaga frá kl. 15.00 - 17.00  

Kjarasamningar hafa verið undirritaðir PDF Prenta Rafpóstur

Stjórn Starfsmannafélags Kópavogs skrifaði þann 4. desember 2008 undir nýjan kjarasamning við Launanefnd sveitarfélaga. 
Samningurinn felur í sér framlengingu og breytingu á eldri samningi og er byggður á sama grunni og önnur starfsmannafélög hafa verið að skrifa undir við Launanefnd sveitarfélaga.

Farið var yfir samninginn á fundi með trúnaðarmönnum í morgun þann  5. desember kl. 08:30.

Hér má sjá viðbætur á gildandi kjarasamning
• ný launatafla tekur gildi 1. desember 2008
• launatafla hækkar um kr. 20.300.-
• Eingreiðslur samkvæmt heimild Launanefndar sveitarfélaga frá 28. janúar 2006 fara inn í launatöflu
• orlofsuppbót verður kr. 25.200.-
• desemberuppbót verður kr. 72.399.-
• þeir félagsmenn SfK  sem voru í starfi 29. maí 2005 fá kr. 81.348.- í desemberuppbót
• veikindaréttur vegna barna verða 12 dagar – voru áður 10 dagar
• greiðslur vegna ferða með nemendur/skjólstæðinga eru komnar inn í samninginn
• framlag vinnuveitenda til styrktarsjóðs BSRB er aukið í 0,75%
• framlag í endurhæfingarsjóð verði 0,13%, en sjóðurinn er til að takast á við vaxandi örorku og styðja þá sem lenda í skertri vinnugetu
• framlag til Lífeyrissjóðs starfsmanna sveitarféaga verður aukið í 12% sem er mótframlag launagreiðenda
• endurskoðun á innleiðingu og framkvæmd starfsmats
• aukinn réttur trúnaðarmanna til að sækja trúnaðarmannaskóla BSRB
Stefnt er að því að halda kynningarfundi á þriðjudag og miðvikudag í næstu viku og síðan verður kosið um samninginn á fimmtudag og föstudag.

Nánari upplýsingar verða sendar út síðar.

 
< Fyrri   Næsti >